CTS: 8 einingar Kennslumisseri: Haust
Markmið og viðfangsefni: Á námskeiðinu er fjallað um hvernig nota má tölvu- og upplýsingatækni til að gera stærðfræðinám í grunnskóla ánægjulegt og árangursríkt. Beitt er nútímatækni en einnig horft til nánustu framtíðar. Nemendur kynnast því sjálfir hvernig er að læra stærðfræði með Netið, vasareikna og tölvuforrit innan seilingar. Viðfangsefnin eru einkum á sviði tölfræði og rúmfræði. Nemendur læra að skapa námsaðstæður fyrir grunnskólanema þar sem upplýsingatækni er virkjuð og fjallað er um kennsluhætti við slíkar aðstæður, markmið, val á viðfangsefnum, námsmat o.fl. Fjallað er um hlutverk stærðfræðinnar í íslensku nútímasamfélagi. Hugað er að stærðfræðilegu læsi og þætti stærðfræði í almennri menntun. Sérstaklega er fjallað um ýmis viðfangsefni daglegs lífs sem leysa má með stærðfræði, svo sem gerð fjárhagsáætlana. Einnig er fjallað um hagnýtingu stærðfræðinnar á ýmsum sviðum atvinnulífsins og við stjórnun samfélagsins. Vinnulag: Kennslan fer fram í umræðum, fyrirlestrum og verklegum tímum í tölvustofu.
20.38.34 Stærðfræðin í lífi og starfi
CTS: 8 einingar
Kennslumisseri: Haust

Umsjónarkennari: Guðbjörg Pálsdóttir
Umsjónarkennari: Kristín Bjarnadóttir
Kennari: Margrét Vala Gylfadóttir